Fór að sjá leikhús með mömmu í gær. Sáum leikverkið Gálmu, sem sett var upp í Norðurpólnum. Leikhópurinn bakvið verkið heitir Sómi þjóðar, og er nokkuð spennandi. Leikritið sjálft er nýtt og er eftir meðlim hópsins Tryggva Gunnarsson, sem einnig leikstýrir því. Þetta er fyrsta leikritið eftir Tryggva, hann er skáld, það eitt er víst. Leikararnir eru fjórir, Hilmir, Bjartur, Guðrún og svo Tryggvi sjálfur. Sagan hverfist um þau. Vigar, Baldur og Lilja, sem öll búa einhverstaðar afskekkt í bændasamfélagi gamla Íslands. Þegar dreifbýlið var ennþá tortryggilegt, og borgin í suðri sveipuð mistískum blæ.
Baldur hefur fengið inn í skóla í Reykjavík, og ætlar að taka Lilju kærustuna sína með sér. Vigar verður hins vegar eftir. Piltarnir eru báðir niðursetningar og starfa fyrir föður Lilju, óðalsbóndann á svæðinu. Eitt kvöld inn á einhverskonar "rural-speakeasy," hittast krakkarnir en þar er einnig djöfullegur aðkomumaður sem hleypir öllu í bál og brand milli krakkanna. Hann veit þeirra myrkustu leyndarmál og spyrnir þeim saman við hvort annað.
Verkið hefur fengið góða dóma og sem frumraun Tryggva, þá er þarna margt alveg glimrandi gott. En annars verð ég að segja að verkið heillaði mig ekki. Það byggir á þekktu minni (Galdra Lofts atmo) og margt smekklega gert, en mér fannst það einstaklega tjah "órelevant." Það talaði ekki til mín á neinni bylgjulengd, þess heldur fóru einmitt rembingslegustu birtingarmyndir sveitarómantíkurinnar afskaplega í taugarnar á mér.
Söngur og dans og leikaramenntaðir/miðaðir leikarar/leikstjórar. Hættulegasti kokteill sem leikhúsið hefur upp á bjóða. Fyrir utan hvað texti vísnanna var stirður, þá innihéldu söng og dans uppbrotin enga almennilega upphafningu á aðstæðum. Þau sköpuðu framandgervingaráhrif, og ekki einhver and-Brechtísk Tarantino töffara áhrif, heldur neikvæðu framandgervinguna - það er, maður var áminntur að maður væri að horfa á leikrit, og mögulega bara ekkert svo gott leikrit. Ég allavega roðnaði í þessum senum.
En þá má einnig segja frá því að önnur kóreógröfuð atriði sýningarinnar voru ansi flott, þá helst glíman í lokin, stigið, lyft, klofbragð, mjaðmahnykkur og hvað að lokum, jú krókur á móti bragði. Mjög flott. Textinn var heilt yfir flottur. Afspyrnu góðir sprettir en ekki hnökralaus.
Skortur á einhverskonar samfélagslegum broddi varð til þess að verkið verður kraftlaust. Þessi síða er til fyrst og fremst til að krónikla skoðanir höfundar og eins og er, þá finnst mér krafan frá nútímasamfélaginu um að leikhúsinu beri að kryfja og svara of sterk til að hundsa það. Í annarskonar tíðaranda hefði verkið eflaust talað betur til mín, kannski mun það breytast.
Ég heillaðist ekki af Bjarti Guðmundssyni, hann á í vandræðum með röddina á sér, og tjah „viftusýnir“ fullmikið og allt of kröftuglega. Guðrún Bjarnadóttir er spennandi leikkona, en ég er ekki frá því að maður hafi fengið á tilfinninguna að hún hafi orðið undir í ferlinu. En í lokasprettinum er hún algjörlega frábær og vinnur virkilega vel með sitt showdown. Tryggvi er góður, viðkunnalegur leikari og með góðan framburð, en hvarf algjörlega í skuggann á Hilmi Jenssyni, sem er að öðrum ólöstuðum mest spennandi leikari sinnar kynslóðar. Flugeldasýning frá upphafi til enda. Líkamsburðir, framburður, texta-meðhöndlun. Hann er sífellt að krefja mótleikara sína um viðbrögð. Eltir þá uppi á sviðinu og heimtar. lýsingin lék við hann. Þegar hann átti sviðið einn og sviðsljósið var á honum, tímdi ég ekki einu sinni að blikka. Hann er einhverskonar leik-afl, og ég get ekki beðið eftir því að sjá meira. Þá var hans hlutverk líka sérstaklega vel unnið af höfundinum Tryggva, smekklega daðrar við klisjur og textinn framúrskarandi.
Umgjörðin var líka flott. Lýsingin flott notuð og leikmynd og búningar til fyrirmyndar.
Gálma er afskaplega athyglisverð sýning, frá enn athyglisverðari hóp. Ég er spenntur að sjá meira frá Sóma þjóðar og bölva sjálfum mér fyrir að hafa ekki séð verkið Ég er vindurinn niður í Kjallara, í leikstjórn Ingibjargar Huld Haraldsdóttur.
Svo er auðvitað alltaf yndislegt að koma í Norðurpólinn. Þetta er flott rými og vonandi að það haldi áfram að vinna það góða starf sem hefur verið í öndvegi þarna.